Hagsmunasamtökin SKELRÆKT voru stofnuð 1. janúar 2003 og hafa starfað óslitið síðan. Samtökin hafa verið samstarfsvettvangur frumkvöðla í greininni og sameiginlegur vettvangur í samtali við stjórnvöld á landsvísu og í héraði. Innan samtakanna hafa verið kláruð nokkur verkefni sem hafa byggt upp þekkingu sem síðan hefur verið miðlað til nýrra frumkvöðla sem hafa komið að greininni á löngum tíma.
Félagið
Hagsmunasamtökin Skelrækt voru stofnuð árið 2003 og stuðla að samstarfi, þekkingarmiðlun og hagsmunagæslu frumkvöðla í skelrækt á Íslandi.
